DC-4 flugvélar lentu á Reykjavíkurvelli

DC-4 flugvélar lentu á Reykjavíkurvelli

Kaupa Í körfu

Tvær flugvélar af gerðinni Douglas DC-4 millilentu á Reykjavíkurflugvelli síðdegis í gær en vélarnar eru á leið frá Bandaríkjunum til Berlínar í Þýskalandi vegna töku á kvikmynd um loftbrúna til Berlínar. "Fjarkarnir" sinntu millilandaflugi Íslendinga í um áratug eftir seinni heimsstyrjöldina og auk þess átti Landhelgisgæslan slíka vél á svipuðum tíma, en vélar af þessari tegund hafa verið sjaldséðar undanfarin ár. Myndatexti:Í aðfluginu féll olíuþrýstingur á einum hreyfli annarrar vélarinnar og kom hún því inn á þremur hreyflum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar