Háskólinn á Akureyri

Kristján Kristjánsson

Háskólinn á Akureyri

Kaupa Í körfu

Nýtt verknámshús heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri var tekið í notkun í gær og hefur fengið nafnið Starfsver. Húsið verður einkum nýtt til starfsþjálfunar nemenda í hjúkrunarfræði og iðjuþjálfun. Nýbyggingin er sérhönnuð í þeim tilgangi að þjálfa nemendur í að nýta þá þekkingu sem þeir hafa aflað sér í bóklegu námi. Myndatexti: Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra opnaði formlega verknámshús fyrir kennslu í hjúkrunarfræði og iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri í gær en það bætir kennsluaðstöðuna til mikilla muna. F.v. Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA, Halldór Blöndal, forseti Alþingis, Tómas Ingi Olrich, Sverrir Hermannsson alþingismaður, Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra, Árún K. Sigurðardóttir, brautarstjóri hjúkrunarbrautar, Þórarinn J. Sigurðsson, deildarforseti heilbrigðisdeildar, og Snæfríður Þ. Egilson, brautarstjóri iðjuþjálfunarbrautar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar