Flökt í Nýlistasafninu

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Flökt í Nýlistasafninu

Kaupa Í körfu

Flakkað með tónlistargjörninga SAMSÝNING þriggja myndlistarmanna, Magnúsar Pálssonar, Erics Andersens og Wolfgangs Müllers, verður opnuð í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3, í dag, kl. 16. Listamennirnir eru fulltrúar þriggja kynslóða, af ólíku þjóðerni, en eiga það sameiginlegt að vinna í líkum miðlum, á sviði margmiðlunar og gjörninga. "Sýningin hefur yfirskriftina Flökt og átti Magnús hugmyndina að sýningunni og fékk þá Eric Andersen og Wolfgang Müller til samstarfs við sig," segir Geir Svansson, framkvæmdastjóri Nýlistasafnsins. "Sýninguna má skoða sem eins konar "stöðutékk" á þessari gerð myndlistar. Í því ljósi er sýningin einkar áhugaverð fyrir Nýlistasafnið sem á uppruna sinn að rekja til hugmynda- og gjörningalistar." MYNDATEXTI. Stund milli stríða: Wolfgang Müller, Magnús Pálsson og Eric Andersen.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar