Júlía Tómasdóttir

Júlía Tómasdóttir

Kaupa Í körfu

Listin er löng en lífið er stutt er stundum sagt. Útlit er fyrir að listamannslíf Júlíu Tómasdóttur geti orðið langt ef svo heldur fram sem horfir. Júlía hélt sína fyrstu málverkasýningu nú fyrir skömmu, aðeins fimm ára gömul. Fjörutíu gestir komu á sýninguna sem haldin var heima hjá listamanninum í fallegri og bjartri stofu við Skólatún á Álftanesi. Útsýnið er svo fagurt út um glugga stofunnar að það gæti veitt jafnvel hinum ólisthneigðu innblástur. Júlía hefur enda málað myndaröð þar sem húsið, hún sjálf og umhverfið kemur mjög við sögu. Myndatexti: Júlía Tómasdóttir í fangi móður sinnar, Öldu Guðjónsdóttur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar