Páll Þorleifsson heiðraður

Páll Þorleifsson heiðraður

Kaupa Í körfu

Hrafnista í Hafnarfirði kynnir listamenn heimilisins með ýmsum hætti og á dögunum var dagskrá til heiðurs Páli Þorleifssyni frá Kaðarnesi í Reyðarfirði. Ljóðabók sem Páll gaf út 1996 var uppistaða dagskrárinnar. Heimilismenn fluttu ýmis yrkisefni í tali og tónum og kvartett frá Karlakórnum Þröstum skemmti, en Páll var félagi í Þröstum frá 1934 og heiðursfélagi þeirra frá 1990. Hann samdi m.a. Þrastasönginn, lag og ljóð, sem flutt var á 50 ára afmæli kórsins. Páll er einnig kórfélagi í Hrafnistukórnum sem kom fram af þessu tilefni. Myndatexti: Páll Þorleifsson er einn listamanna Hrafnistu í Hafnarfirði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar