Baltasar Kormákur ræðir kvikmyndina Hafið

Þorkell Þorkelsson

Baltasar Kormákur ræðir kvikmyndina Hafið

Kaupa Í körfu

Baltasar Kormákur ræðir kvikmyndina Hafið við framhaldsskólanema. "ÉG er sannfærður um að það geti ekki verið réttlátt að menn labbi út með milljarða," segir kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur við fullan sal af nemum í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. "Ég get ekki verið sammála því að það sé eina réttláta aðferðin - og byggðarlög leggist í rúst." Baltasar er að fjalla um skoðanir sínar í sjávarútvegsmálum, en umræðufundurinn í FG er einn af mörgum sem Baltasar á með framhaldsskólanemum um þessar mundir þar sem nýjasta kvikmynd hans, Hafið, er nýtt sem innlegg í samfélagsumræðuna meðal ungs fólks. Myndatexti: Kvikmyndin Hafið skiptir máli í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og nemendur tóku vel á móti Baltasar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar