Unglist - Götuleikhúsið

Unglist - Götuleikhúsið

Kaupa Í körfu

Dansað á Unglist SEX danshópar frá fimm skólum auk götudanshóps taka þátt í sýningu á vegum Unglistar í Tjarnarbíói klukkan 20 í kvöld. Að sögn Tönju Rutar Ásgeirsdóttur, annars skipuleggjenda Dansþyts, eru öll dansatriðin frumsamin, sum af kennurum en önnur af nemendunum sjálfum. Öll atriðin eru hópatriði og eru danshóparnir frá Listdansskóla Íslands, Klassíska listdansskólanum, Dansskóla Birnu Björnsdóttur og Dansskóla Guðbjargar Björgvinsdóttur. MYNDATEXTI: Götuleikhúsið kom fram á setningarhátíð Unglistar í Ráðhúsinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar