Helga Björg Ragnarsdóttir

Steinunn Ásmundsdóttir

Helga Björg Ragnarsdóttir

Kaupa Í körfu

Opnað hefur verið á Egilsstöðum skrifstofa atvinnu- og jafnréttisráðgjafa Norðausturkjördæmis og hefur Helga Björg Ragnarsdóttir verið ráðin til að sinna starfinu. Ráðning atvinnu- og jafnréttisráðgjafa er liður í sameiginlegu verkefni félagsmálaráðuneytis og Byggðastofnunar um að bæta stöðu kvenna á landsbyggðinni og hefur áður verið ráðinn slíkur starfskraftur á Norðurlandi vestra, með aðsetur á Blönduósi. Þótti það skila svo góðum árangri að ástæða var talin til að blása til sóknar í norðausturhluta landsins. Myndatexti: Helga Björg Ragnarsdóttir

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar