Gunnþóra Ólafsdóttir - Arkímedesarverðlaun ESB

Jim Smart

Gunnþóra Ólafsdóttir - Arkímedesarverðlaun ESB

Kaupa Í körfu

Nemi í HÍ hlýtur Arkímedesarverðlaun ESB fyrir rannsóknir á viðhorfum ferðamanna Ferðamenn á hálendi ekki einsleitur hópur GUNNÞÓRA Ólafsdóttir, nemi í landfræði og ferðamálafræðum við Háskóla Íslands, er einn af nokkrum einstaklingum sem hlýtur Arkímedesarverðlaun Evrópusambandsins í ár sem veitt verða í München 5. desember nk. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1998 og falla í skaut nema sem leggja stund á grunnnám við háskóla. Keppendur senda inn verkefni sem tengjast vísindalegum markmiðum keppninnar hverju sinni en Gunnþóra hlýtur verðlaunin fyrir verkefni sem tengist áhrifum ferðamennsku á náttúru og samfélag. MYNDATEXTI: Gunnþóra Ólafsdóttir er nemi í landfræði og ferðamálafræðum við Háskóla Íslands.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar