Brúðuleikhús

Sverrir Vilhelmsson

Brúðuleikhús

Kaupa Í körfu

Krakkarýni: Leikbrúðuland Allir sögðu frá Systkinin Anna Elísabet og Ólafur Sverrir Sölvabörn eru 7 og 9 ára nemendur í Selárskóla. Þau eru mikið leikhúsfólk og sjá gjarna bæði barna- og fullorðinssýningar. Í seinustu viku sáu þau Ævintýrið um Stein Bollason og Fjöðrina sem varð að fimm hænum í Leikbrúðulandi. "Þetta var mjög skemmtileg sýning," segir Ólafur og Anna Lísa er alveg sammála. "Mér fannst hundurinn hann Steins fyndnastur," segir Ólafur, en "mér fannst risinn skemmtilegastur," segir Anna Lísa, og hlær að blaðamanninum sem spyr hvort hún hafi verið hrædd við risann. "Þetta var bara vitlaus risi." MYNDATEXTI. Ólafur Sverrir og Anna Elísabet.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar