Grafa í sjóninn við Ólafsvíkurenni

Alfons Finnsson

Grafa í sjóninn við Ólafsvíkurenni

Kaupa Í körfu

Ekki mátti tæpara standa þegar gröfustjóra var bjargað úr hjólaskóflu sem hafði lent úti í brimgarðinum við Ólafsvíkurenni í gærmorgun. Sonur mannsins lagði sig í mikla hættu við að bjarga föður sínum og munaði minnstu að illa færi þegar brimið hreif hann með sér og kastaði honum til og frá í stórgrýttri fjörunni. "Það er ekki hægt að lýsa tilfinningunni. Maður veit ekki hvað snýr upp og hvað niður. Það eru bara ægileg högg og hávaði," sagði Svanur Tómasson í samtali við Morgunblaðið /6. MYNDATEXTI: Björgunarmaður setti hjálm á höfuð Tómasar áður en hann var tekinn í land og settur á börur. Í millitíðinni hjarnaði hann við. (Mynd ársins í Ljósmyndasamkeppni Okkar manna 2003, Fréttasyrpur 1. verðlaun )

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar