Magnús Magnússon og Herdís Þorvaldsdóttir

Jim Smart

Magnús Magnússon og Herdís Þorvaldsdóttir

Kaupa Í körfu

Kvikmyndin Hafið var ótvíræður sigurvegari Edduverðlaunahátíðarinnar, uppskeruhátíðar Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA. Verðlaunin voru veitt með viðhöfn í Þjóðleikhúsinu á sunnudagskvöldið og mætti fólk í sínu fínasta pússi til að fagna því sem best hefur verið gert í íslenskum kvikmyndum og sjónvarpi á árinu. Hafið hreppti átta verðlaun auk þess sem hún verður framlag Íslendinga til næstu Óskarsverðlauna. Hafið var valin bíómynd ársins og Baltasar Kormákur leikstjóri ársins fyrir sömu mynd. Baltasar tók einnig við verðlaunum fyrir handrit ársins fyrir myndina ásamt Ólafi Hauki Símonarsyni. MYNDATEXTI: Heiðursverðlaunahafinn Magnús Magnússon og Herdís Þorvaldsdóttir, leikkona ársins í aukahlutverki, samgleðjast í Þjóðleikhúsinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar