Vísindamenn hjá Landsvirkjun

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Vísindamenn hjá Landsvirkjun

Kaupa Í körfu

Íslenska lífmassafélagið stefnir að rannsóknum til undirbúnings lífmassaverksmiðju hér á landi. Hráefnið yrði lúpína eða bygg sem ræktað yrði á söndunum á Suðurlandi og á Suðausturlandi. Evrópusambandið hefur nú veitt 60 milljóna króna styrk til rannsóknarverkefnisins en Íslenska lífmassafélagið hefur haft frumkvæði að því að setja saman öflugan, alþjóðlegan rannsóknarhóp. Forsaga verkefnisins nær allt aftur til ársins 1992 en félagið var stofnað 1997 af nokkrum einstaklingum og fyrirtækjum, s.s. Delta, Olíufélaginu og SR-mjöli en síðan hafa mun fleiri fyrirtæki komið að félaginu og stærstu eigendur þess eru nú Þróunarfélagið, Nýsköpunarsjóður og Fjárfestingastofan. Myndatexti: Vísindamennirnir Michael Kamm, Michael Wink, Klaus Richter, Víglundur Þorsteinsson stjórnarformaður og Birgit Kamm. Íslenska lífmassafélagið hefur átt frumkvæði að því að setja saman alþjóðlegan rannsóknarhóp.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar