Ottó Guðjónsson, lýtalæknir

Ottó Guðjónsson, lýtalæknir

Kaupa Í körfu

Hrukkur eiga í vök að verjast "Nútímafegrunaraðgerðir eru liður í eðlilegu viðhaldi á útliti fólks en ekki umbreyting," segir Ottó Guðjónsson, lýta- og fegrunarlæknir, og skírskotar til nýrra efna sem sprautað er í húðina. Þau eru í auknum mæli notuð í baráttunni við hrukkurnar og ef spá Ottós rætist verður þróunin sú að þorri íslenskra kvenna viðheldur unglegu útliti sínu með sprautum á nokkurra mánaða fresti. Sprautum, sem innihalda fylliefni, er beitt á hrukkur og djúpa drætti í kringum munninn, "áhyggjuhrukkur" á milli augabrúnanna og til að fá fyllingu í varir. Ottó starfaði um tíu ára skeið í New York við lýta- og fegrunarskurðlækningar. MYNDATEXTI:Ottó Guðjónsson læknir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar