Stefán Karl Stefánsson

Jim Smart

Stefán Karl Stefánsson

Kaupa Í körfu

Stofnfundur samtakanna Regnbogabarna var haldinn í Þjóðleikhúsinu í gær þar sem kosin var undirbúningsstjórn sem á að vinna í samræmi við hugmyndir Stefáns Karls Stefánssonar um framtíðarstarfsemi samtakannna, en hann leggur áherslu á að réttur barna sé virtur. Hugmyndir hans ganga einnig út á samstarf við aðra aðila, s.s. Rauða krossinn, auk þess sem hann vonast til þess að samtökin fari á fjárlög árið 2004. Stefán segir það samfélagsmál að hlúa að börnum og reyna að stöðva einelti og ofbeldi. Myndatexti: Stefán Karl Stefánsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar