Skólaheimsóknir á höfuðborgarsvæðinu

Guðrún Vala Elísdóttir

Skólaheimsóknir á höfuðborgarsvæðinu

Kaupa Í körfu

Heimsóttu skóla í höfuðborginni SÚ nýbreytni var á starfsdegi nýlega að kennarar og annað starfsfólk Grunnskólans í Borgarnesi, fóru í skólaheimsóknir á höfuðborgarsvæðinu. Skiptist fólk á milli fimm grunnskóla og viðaði að sér hugmyndum og kynntist störfum annarra. Eftir hádegi voru Orkuveita Reykjavíkur og Skólavörubúðin heimsótt. Þeir sem höfðu úthald fóru síðan í Bláa lónið síðdegis á meðan hinir fóru heim í Borgarnes. Meðfylgjandi mynd er tekin af hópnum á lóðinni við Skólavörubúðina. ENGINN MYNDATEXTI. mynd kom ekki

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar