Stóra sænál

Helgi Bjarnason

Stóra sænál

Kaupa Í körfu

Fræðasetrið í Sandgerði hefur fengið fiskinn stóru sænál lifandi og er hann geymdur í fiskabúri í húsnæði setursins. Er talið trúlegt að þetta sé eini fiskurinn af þessari tegund sem til er lifandi í safni hér á landi. Skipverjar á Hólmsteini GK komu með fiskinn til Sveins Kára Valdimarssonar, forstöðumanns Náttúrustofu Reykjaness í Sandgerði. Fann hann fljótt út að þetta væri stóra sænál. Skipverjarnir tóku eftir fiskinum þegar þeir voru að draga netin um sjö mílur austur af Garðskaga, en hann hafði vafið sig um einhvern hluta veiðarfæranna. Þeir settu hann í fötu og fóru í Fræðasetrið. MYNDATEXTI: Stóra sænálin er um 25 sentímetra löng.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar