Þingforsetar

Þingforsetar

Kaupa Í körfu

Edmund Joensen, forseti færeyska lögþingsins, og Daniel Skifte, forseti grænlenska landsþingsins, komu til landsins síðdegis í gær í þeim tilgangi að funda með Halldóri Blöndal, forseta Alþingis. Þeir, ásamt Halldóri og föruneyti, héldu strax til Egilsstaða í gærkvöld, en í dag munu þeir m.a. sækja heim Síldarvinnsluna hf. í Neskaupstað og fleiri staði. Myndtexti: Halldór Blöndal, forseti Alþingis, tekur á móti Edmund Joensen, forseta færeyska lögþingsins, og Daniel Skifte, forseta grænlenska landsþingsins, á Reykjavíkurflugvelli í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar