Tal og Íslandssími sameinast

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Tal og Íslandssími sameinast

Kaupa Í körfu

Tal að fullu komið í eigu Íslandssíma Norðurljós seldu sinn hlut í Tali fyrir 1,4 milljarða króna ÍSLANDSSÍMI keypti í gær öll hlutabréf í Tali hf. eins og samið var um við eiganda meirihluta hlutafjár í félaginu 18. október síðastliðinn þegar Íslandssími keypti 57,31% hlut Western Wireless International í Tali./Íslandssími og Tal lúta nú sameiginlegri stjórn þótt ekki verði gengið frá formlegum samruna fyrirtækjanna fyrr en á næstu mánuðum. Í framhaldi af lokafrágangi á kaupum á öllum hlutabréfum í Tali var félaginu kosin ný stjórn og skipa hana þeir Stefán Héðinn Stefánsson stjórnarformaður, Margeir Pétursson, Bjarni K. Þorvarðarson, Friðrik Jóhannsson og Kenneth D. Peterson. Þetta eru sömu aðilar og skipa stjórn Íslandssíma. Óskar Magnússon er forstjóri Íslandssíma og Tals og verður forstjóri sameinaðs félags. Lykilstjórnendur Tals verða áfram við störf hjá sameinuðu félagi. MYNDATEXTI: Skrifað undir samning Íslandssíma um kaup á öllum hlutabréfum Tals í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar