Dagur íslenskrar tungu

Garðar P.Vignirsson

Dagur íslenskrar tungu

Kaupa Í körfu

Nendur í 8. til 10. bekk Grunnskóla Grindavíkur æfðu dagskrá vegna Dags íslenskrar tungu og héldu síðan mikla sýningu síðastliðinn fimmtudag. Fjölbreytileikinn var allsráðandi í uppfærslunni en meðal atriða voru þjóðsögur úr Grindavík og lag eftir Bubba Morthens í nýjum búningi. Ljóð voru flutt, meðal annars eftir Þórarin Eldjárn, og spilað undir eða leikið. Óhætt er að segja að nemendurnir hafi lagt sig verulega fram og margir komið skemmtilega á óvart í flutningi sinna atriða.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar