Fanney Oddgeirsdóttir og Haukur H. Hauksson

Skapti Hallgrímsson

Fanney Oddgeirsdóttir og Haukur H. Hauksson

Kaupa Í körfu

Kristján Jóhannsson óperusöngvari, bræður hans, Jóhann Már og Svavar Hákon, skemmtu vistmönnum á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri í gærkvöldi með söng ásamt systursyni sínum, Erni Viðari Birgissyni. Tilefnið var að í gær kom út geisladiskur með söng föður þeirra, Jóhanns Konráðssonar - Jóa Konn, eins og hann var jafnan kallaður - og bæklingur þar sem lífshlaup hans er rakið. Ágóði af sölu disksins og bæklingsins rennur til styrktar hjartalækningum við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Jóhann hefði orðið 85 ára í nóvember síðastliðnum, en tuttugu ár eru liðin 27. desember nk. frá því hann lést MYNDATEXTI: ( Minningartónleikar um Jóhann Konráðsson á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri )

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar