Matthías Magnússon og Magnús Björgvinsson

Reynir Sveinsson

Matthías Magnússon og Magnús Björgvinsson

Kaupa Í körfu

Nýjasta skip íslenska kaupskipaflotans heitir Björgvin, eftir föður og afa eigenda þess, Björgvins frá Háteigi í Garði. Skipið verður notað til að flytja inn þorskhausa fyrir fiskverkunina Háteig í Garði auk annars tilfallandi flutnings. Skipið kom í fyrsta skipti til landsins seint á laugardagskvöldið með um 60 tonn af hausum frá Skotlandi sem landað var í Sandgerði og var áætlað að það færi þaðan aftur í dag. Feðgarnir Magnús Björgvinsson og Matthías Magnússon notuðu tímann til að útbúa skipið þannig að hægt væri að skrá það á íslenska skipaskrá. MYNDATEXTI: Feðgarnir Matthías Magnússon og Magnús Björgvinsson í Háteigi í Garði eru eigendur Björgvins

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar