Skórinn út í glugga

Skórinn út í glugga

Kaupa Í körfu

Valgerður Marija Purusic, sem er þriggja og hálfs árs, var að vonum spennt í gærkvöld því von var á góðri heimsókn í nótt. Jólaskórinn var settur á áberandi stað út í glugga og líklega hefur Stekkjarstaur, sem ríður á vaðið í bæjarferðum þeirra bræðra, jólasveinanna, kolfallið fyrir skótauinu þannig að Valgerður hefur væntanlega ekki orðið fyrir vonbrigðum. Stekkjarstaur er fljótari í ferðum en áður því að nú nýta jólasveinarnir sér þyrlu frá Flugfélaginu Geirfugli til að ná örugglega til allra. enginn myndatexti ( Valgerður Marija Purusic 31/2 árs )

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar