Valur - Tindastóll 90 : 120

Jim Smart

Valur - Tindastóll 90 : 120

Kaupa Í körfu

GRINDVÍKINGAR komust í efsta sæti úrvalsdeildar karla með 105:95 sigri á Haukum í Hafnarfirði í gærkvöldi. Gestirnir úr Grindavík höfðu undirtökin en mikil værukærð á köflum gerði Hafnfirðingum kleift að minnka forystu gestanna og gera leikinn spennandi en þar við sat. Valsmenn fengu Tindastól í heimsókn að Hlíðarenda en urðu að játa sig sigraða, 120:90, með nýjan þjálfara og verma eftir sem áður botnsæti deildarinnar. Sauðkrækingar aftur á móti fikruðu sig upp í sjötta sætið með sigrinum Myndatexti: Hvert ertu að fara?" gæti Ægir Jónsson verið að spyrja er hann virðir félaga sinn hjá Val, Laverne Smith, fyrir sér en Sigurður Sigurðsson úr Tindastól reynir að stöðva Bandaríkjamanninn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar