Dúettinn Adrone

Sverrir Vilhelmsson

Dúettinn Adrone

Kaupa Í körfu

Fjölbreytilegir raftónleikar á Vídalín RAFHLJÓÐIN verða ráðandi á tónleikum á Vídalín í kvöld þar sem fram koma Exos, Biogen, Adrone, Einóma og Laguz. Ívar Sævarsson og Þorgrímur Einarsson skipa dúettinn Adrone en þeir eiga hugmyndina að tónleikunum./ Þeir spila tilraunakennda raftónlist með hipp-hopp-ívafi. "Það eru mikil áhrif frá hipp-hoppi í töktunum," útskýra þeir en Adrone er að koma fram í annað skipti og stefnir á útgáfu breiðskífu innan tíðar. MYNDATEXTI: Dúettinn Adrone ætlar að spila tilraunakennda raftónlist með hipp-hopp-ívafi í kvöld en tónlistarmaðurinn Exos stendur hér á milli strákanna Ívars og Þorgríms.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar