Starfsmenn Guðmundar Tyrfingssonar ehf.

Sigurður Jónsson

Starfsmenn Guðmundar Tyrfingssonar ehf.

Kaupa Í körfu

"Það sem er hvað ánægjulegast á þessum námskeiðum er að starfsmenn eru virkir og sjá sjálfir um að leiðbeina og miðla sinni þekkingu og reynslu," segir Benedikt Guðmundsson framkvæmdastjóri hjá hópferða- og ferðaþjónustufyritækinu Guðmundi Tyrfingssyni ehf. á Selfossi. Á námskeiðinu, sem haldið er árlega, var farið vel yfir umhverfis- og öryggisstefnu fyrirtækisins, áherslur ræddar, auk þess sem gæðahandbók bílstjóra var kynnt en í henni er að finna starfsreglur bifreiðastjóra Guðmundar Tyrfingssonar ehf. allt frá undirbúningi fyrir ferð þangað til ferð lýkur. MYNDATEXTI: Starfsmenn Guðmundar Tyrfingssonar ehf. á Selfossi við bifreiðina sem notuð var á námskeiðinu en hún mun vera eina hópferðabifreiðin sem er sérútbúin til kennslu í svonefndum grænum akstri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar