Landsmennt - Björk og Svala

Hafþór Hreiðarsson

Landsmennt - Björk og Svala

Kaupa Í körfu

Í SÍÐUSTU kjarasamningum Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins árið 2000 var samið um framlag í starfsmenntunarsjóð sem fékk nafnið Landsmennt, fræðslusjóður verkafólks á landsbyggðinni. Helstu verkefni sjóðsins eru að sinna stuðningsverkefnum og þróunar- og hvatningaraðgerðum í starfsmenntun, styrkja rekstur námskeiða og nýjungar í námsefnisgerð og veita einstaklingum, verkalýðsfélögum og fyrirtækjum styrki vegna starfsmenntunar. MYNDATEXTI: Þær Björk Breiðfjörð Helgadóttir (fjær) og Svala Björgvinsdóttir, félagar í Verkalýðsfélagi Húsavíkur, eru meðal þeirra sem nýtt hafa sér Landsmennt, fræðslusjóð verkafólks á landsbyggðinni. Aðalsteinn Árni Baldursson er formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur. mynd kom ekki (Landsmennt Konurnar á myndinni heita fv. Björk Breiðfjörð Helgadóttir og Svala Björgvinsdóttir.)

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar