Sigrún María Óskarsdóttir og Óskar Þór Halldórsson

Skapti Hallgrímsson

Sigrún María Óskarsdóttir og Óskar Þór Halldórsson

Kaupa Í körfu

Fjölskylda sem lenti í alvarlegu umferðarslysi í Danmörku flutt í hentugra húsnæði "Ég bjó til alveg ótrúlega flotta gjöf handa mömmu og pabba," sagði Sigrún María Óskarsdóttir, 8 ára stúlka á Akureyri, en hún slasaðist alvarlega í umferðarslysi þegar hún var með foreldrum sínum og systkinum í sumarleyfi í Danmörku í byrjun júlí á liðnum sumri. Sigrún María var í lífshættu um tíma eftir slysið, sem varð 5. júlí síðastliðinn skammt sunnan við bæinn Herning. Hjúkrunarfræðingur sem leið átt hjá kom henni til bjargar, en hún var þá í hjarta- og öndunarstoppi. MYNDATEXTI: "Mér finnst gaman að tala við Kíkí," segir Sigrún María, en hún átti afmæli örfáum dögum fyrir slysið og óskað sér páfagauks í afmælisgjöf. Bangsaleikur er þó skemmtilegasti leikurinn sem hún fer í og í skólanum er það heimilisfræðin og hannyrðirnar sem eiga hug hennar allan. ( Sigrún María Óskarsdóttir á Akureyri, sem lenti í bílslysi í Danmörku í sumar. Með á myndinni er faðir hennar, Óskar Þór Halldórsson og páfagaukurinn Kíkí. )

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar