Óhapp við Flúðir

Sigurður Sigmundsson

Óhapp við Flúðir

Kaupa Í körfu

Það óhapp varð fyrir helgi að um 20 rúllur féllu ofan í Hellisholtalæk við Flúðir. Stór flutningabíll frá flutningafyritækinu JSK, sem var að koma með rúllur af strandreyr og bygghálmi úr Rangárvallasýslu fyrir Flúðasveppi, náði ekki að hægja á bílnum vegna þess að gírskiptingin bilaði, að því er talið er. Vildi ekki betur til en svo að hlassið kastaðist til og um 20 rúllur féllu í lækinn og við hann. MYNDATEXTI: Benedikt Ásgeirsson hjá Flúðasveppum nær í rúllur úr Hellisholtalæk.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar