Ólafsvíkurhöfn - Berja ís af Agli Halldórssyni

Alfons Finnsson

Ólafsvíkurhöfn - Berja ís af Agli Halldórssyni

Kaupa Í körfu

Berja ís af bátnum FROSTHÖRKUR hafa verið í Ólafsvík síðustu daga og frostið farið niður í 12 gráður. Norðanvindur hefur einnig blásið og hafa bátar sem stunda róðra héðan verið mikið ísaðir. Skipverjar hafa verið með ísöxina á lofti til að berja ís af bátunum svo ekki skapist hætta af. Ef mikill ís safnast á bátana minnkar stöðugleiki þeirra. Á myndinni sést áhöfn netabátsins Egils Halldórssonar berja ísinn af bátnum í Ólafsvíkurhöfn. ekki annar texti

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar