Kristín Sigfríður Garðarsdóttir keramikhönnuður

Sverrir Vilhelmsson

Kristín Sigfríður Garðarsdóttir keramikhönnuður

Kaupa Í körfu

STÚDÍÓ SUBBA er ekki nándar nærri eins subbulegur staður og nafnið gefur tilefni til að ætla. Þvert á móti er hér um að ræða notalegt keramikverkstæði í Kópavoginum á vegum Kristínar Sigfríðar Garðarsdóttur og þótt hún standi þar upp fyrir haus í leirleðju daginn út og inn, hefur henni tekist að halda vinnustofu sinni ótrúlega hreinlegri þrátt fyrir allt drullumallið. Að undanförnu hefur verið óvenjumikið að gera á vinnustofunni hjá Kristínu Sigfríði enda er hún að undirbúa þátttöku sína í samsýningu íslenskra hönnuða, sem haldin verður í Samnorræna húsinu í Berlín og verður opnuð 30. janúar næstkomandi. "Ég verð að sjálfsögðu við opnun sýningarinnar enda er hér um að ræða einstakt tækifæri fyrir íslenska listamenn og hönnuði að koma sér á framfæri erlendis," sagði Kristín Sigfríður og bætti því við að fyrirhugað væri að fara með sýninguna víðar, til dæmis til Mílanó á Ítalíu. Myndatexti: Postulíns- og glerkönnur Studíó Subba / Kristín Garðarsdóttir

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar