Pell og purpuri

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Pell og purpuri

Kaupa Í körfu

Verkaskipting þremenninganna, sem í desember síðastliðnum opnuðu verslunina Pell og purpura á vinnustofu sinni í Hafnarfirði, er í stórum dráttum á þessa leið: Anna Fanney Ólafsdóttir textílkennari sér um handprjónið, en er nú í tímabundnu leyfi, Ingibjörg Þóra Gestsdóttir, fatahönnuður frá Mode og design-skólanum í Kaupmannahöfn, er sníða- og gæðaeftirlitsstjóri og Sólborg Erla Ingadóttir, myndlistarmaður úr fjöltæknideild MHÍ, er markaðs- og framkvæmdastjóri. Þær síðarnefndu hanna í sameiningu og sauma allt sjálfar. Anna Fanney grípur þó annað slagið í saumaskapinn þegar hún má vera að að líta upp frá prjónunum, en annars er hún kennari í fullu starfi í Breiðholtsskóla enginn myndatexti

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar