Gunnar Marel að viðhaldi Íslendings

Helgi Bjarnason

Gunnar Marel að viðhaldi Íslendings

Kaupa Í körfu

Líf og fjör er að færast á ný í gömlu loðnubræðsluna HÚSNÆÐI gömlu loðnubræðslunnar í miðbæ Reykjanesbæjar iðar brátt af lífi á nýjan leik. Þar er verið að setja upp hjólabrettaaðstöðu og mótorsmiðju auk þess sem gestir geta fræðst um víkingaskipið Íslending sem þar er geymt. Menningar-, íþrótta- og tómstundasvið Reykjanesbæjar (MÍT) hefur fengið til bráðabirgða afnot af húsnæði loðnuverksmiðju Fiskiðjunnar sem staðið hefur ónotað um tíma. Húsin eru á mörkum Njarðvíkur og Keflavíkur, skammt frá Hafnargötu 88 þar sem komið verður upp margháttaðri félagsaðstöðu fyrir börn og ungt fólk. Víkingaskipið Íslendingur er geymt í aðalsal hússins og þar vinnur Gunnar Marel Eggertsson, skipstjóri þess og skipasmiður, að viðhaldi skipsins. Hann er að skrapa af því málninguna og olíubera timbrið að nýju. MYNDATEXTI: Gunnar Marel Eggertsson skrapar gamla málningu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar