Sýningin THEN...hluti 4 - minni forma

Sýningin THEN...hluti 4 - minni forma

Kaupa Í körfu

Sex listamenn sýna á Kjarvalsstöðum THEN...hluti 4 - minni forma, samsýning sex ungra listamanna verður opnuð á Kjarvalsstöðum í kvöld kl. 20.00. then er alþjóðlegur hópur listamanna sem hefur miðstöð í Lundúnum en markmið hans er að sýna, gefa út og ræða málefni sem tengjast nútímalist og lífi. Í verkum sínum vilja listamennirnir vekja hugsanir um form staða, tilfærslur eða staðleysur. Þessi form eru ýmist til í endurminningunni, ímynduð eða í raunveruleikanum. Þau byggjast á menningu nútímans. Slíkar hugmyndir og fyrirmyndir eru ofnar inn í frásagnir sem fjalla um tilfinningalegt og sálrænt ástand eða rými staðar. Þó staðurinn sé rómantískur eða útópískur leikur grunur á að ekki sé allt sem sýnist. MYNDATEXTI: Birgir Snæbjörn Birgisson og Gísli Bergmann við pappaborg Miles Hendersons Smiths. Erlendu listamennirnir koma til landsins í dag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar