Á skautum á tjörninni

Á skautum á tjörninni

Kaupa Í körfu

Kuldinn, sem hefur hrjáð landsmenn síðustu daga, hefur sínar jákvæðu hliðar. Tjörnina í Reykjavík hefur til dæmis lagt og geta ungir sem aldnir nú brugðið þar á leik, farið á skauta eða látið draga sig á sleða. Þessi ungi sleðamaður virtist kunna vel við sig á Tjörninni þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið hjá. Er hann öðrum iðkendum vetraríþrótta góð fyrirmynd, með hjálm á höfðinu, því ísinn er harður ef maður dettur eða rekst á skautahlaupara í ærslunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar