Fálki ræðst á önd

Morgunblaðið RAX

Fálki ræðst á önd

Kaupa Í körfu

HRAUSTUR fálki hremmdi fugl í miðbæ Reykjavíkur um hádegisbil í gær og flaug með bráðina til hafs. Tveir gargandi hrafnar veittu honum eftirför og mávager fylgdist með í fjarlægð. Ljósmyndari Morgunblaðsins kom auga á fálkann þar sem hann flaug til norðurs yfir Hafnarstræti, missti sjónar af honum um stund en fann hann aftur þar sem fálkinn sat á Norðurgarði og gæddi sér á bráðinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar