Sameign USA ehf

Kristján Kristjánsson

Sameign USA ehf

Kaupa Í körfu

BEINT áætlunarflug milli Akureyrar og Parísar verður í boði einu sinni í viku sumarið 2004 á vegum ferðaskrifstofunnar Terra Nova Sól. Þá eru uppi hugmyndir um að bæta við fleiri áfangastöðum sumarið þar á eftir að sögn Friðriks Arnarsonar framkvæmdastjóra Sameignar USA ehf. (Umboðs- og söluskrifstofa Akureyrar) en skrifstofan var opnuð í liðinni viku. Hún er til húsa í miðbæ Akureyrar, Hafnarstræti 99-101, í Amarohúsinu svonefnda, en þar keypti Friðrik rými undir starfsemina. Skrifstofan hefur umboð fyrir Íslandstryggingu, Alþjóða líftryggingafélagið og ferðaskrifstofuna Terra Nova Sól. Friðrik hefur um árabil verið kokkur á Vilhelm Baldvinssyni EA, en ákvað að söðla um, koma í land og hefja rekstur myndatexti : Friðrik Arnarson, framkvæmdastjóri Sameignar, ásamt Svölu Jónsdóttur t.v. og Ragnhildi Stefánsdóttur, starfsmönnum á skrifstofunni

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar