Sundlaugarslys á Tálknafirði

Finnur Pétursson

Sundlaugarslys á Tálknafirði

Kaupa Í körfu

Stiginn í sundlauginni á Tálknafirði, sem 10 ára drengur festist í á fimmtudag svo lá við drukknun, var fjarlægður úr lauginni í gær að lokinni skoðun fulltrúa Vinnueftirlitsins. Til stendur að gera á honum endurbætur og setja hann aftur upp að því loknu. Þrepin í stiganum, sem eru úr rörum, þykja of sleip og á að breyta stiganum til samræmis við annan stiga í lauginni sem er með sléttum þrepum. MYNDATEXTI. Marteinn Örn Halldórsson er orðinn hress eftir sundlaugarslysið, en það voru sundlaugarverðir á Tálknafirði sem björguðu lífi hans.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar