Ísland - Pólland 33-29

Morgunblaðið RAX

Ísland - Pólland 33-29

Kaupa Í körfu

ÓLAFUR Stefánsson rauf 100 marka múrinn gegn Pólverjum í gærkvöldi er hann skoraði sitt sjöunda mark í leiknum, 25:24. Ólafur fetaði þar með í fótspor Patreks, sem varð fyrstur Íslendinga til að skora 100 mörk í HM - í leik gegn Portúgal í Vieseu. Patrekur hefur nú skorað alls 115 HM-mörk, en Ólafur 100 mörk. Næstir þeim á lista eru Valdimar Grímsson með 95 mörk, Geir Sveinsson 87, Kristján Arason 65, Júlíus Jónasson og Sigurður Valur Sveinsson 51 og Gunnlaugur Hjálmarsson með 49 mörk. myndatexti: Sigfús og Ólafur fallast í faðma eftir leik.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar