DJ Sóley

Jim Smart

DJ Sóley

Kaupa Í körfu

Tónlistarverðlaun Radio X og Undirtóna afhent í gær Loftkastalinn var sneisafullur af aðdáendum jaðarvænnar tónlistar í gær; rapp-, raf- og rokkaðdáendur hylltu sitt fólk þegar afhending tónlistarverðlauna Radio X og Undirtóna fór fram í fyrsta skipti. Markmiðið með verðlaununum er að styðja hressilega við bakið á svokallaðri jaðartónlist, tónlist sem mikil gróska hefur verið í að undanförnu að mati aðstandenda. Þeir sem fram komu á hátíðinni voru Brain police, Singapore Sling og Call him mr. Kid, Vínyll, Sigurjón Kjartansson, Ensími ásamt Rottweiler og Botnleðja. Kynnir var Einar Örn Benediktsson og afhentu ýmsir boðberar fagnaðarerindisins verðlaunin, t.a.m. Frosti Logason af X-inu, Ísar Logi frá Undirtónum, Árni Matt. frá Morgunblaðinu og Robbi Kronik, rapphundur með meiru. MYNDATEXTI: Besti plötusnúðurinn, DJ Sóley, þakkar fyrir sig og veifar til viðstaddra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar