ÚA fær viðurkenningu

Kristján Kristjánsson

ÚA fær viðurkenningu

Kaupa Í körfu

ÚA hlaut viðurkenningu jafnréttis- og fjölskyldunefndar Útgerðarfélag Akureyringa hlaut viðurkenningu jafnréttis- og fjölskyldunefndar Akureyrarbæjar fyrir árið 2002, en fyrirtækið þykir reka metnaðarfulla starfsmannastefnu sem m.a. byggist á því að tryggja hverjum einstaklingi sem hjá því starfar jafnræði í samskiptum og tækifærum óháð kynferði, uppruna, starfssviði eða skoðunum. Björn Snæbjörnsson, formaður jafnréttis- og fjölskyldunefndar Akureyrarbæjar, sagði tilgang með veitingu viðurkenningarinnar tvíþættan, þ.e. að vekja athygli á því sem vel væri gert og eins að vera fyrirtækjum hvatning til að sinna þessu málefni. Hann sagði ÚA einn af burðarásum atvinnulífs í bænum með um 400 starfsmenn af báðum kynjum á sjó og landi. MYNDATEXTI: Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri ÚA, t.v., tekur við viðurkenningunni hjá Birni Snæbjörnssyni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar