Heilsulaugin á Húsavíkurhöfða

Hafþór Hreiðarsson

Heilsulaugin á Húsavíkurhöfða

Kaupa Í körfu

Allt frá árinu 1992 hefur hópur fólks á Húsavík notað vatn, sem kemur upp úr borholu á Húsavíkurhöfða, til baða. Þetta vatn er sérstakt að efnisinnihaldi og má með einföldum hætti líkja við heitan sjó, reynslan sýnir að þetta salta vatn hefur t.d. góð áhrif á húðvandamál. Í raun eru á svæðinu nokkrar borholur sem hafa mismunandi seltustig. Baðkarið sjálft sem notað hefur verið er gamalt ostakar sem fékkst í Mjólkursamlaginu á sínum tíma og það ásamt lágmarks búningsaðstöðu hefur verið látið duga til dagsins í dag. MYNDATEXTI: Þessa aðstöðu á Húsavíkurhöfða hafa menn notað til baða frá 1992.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar