Ísak Þórir og Jarl

Gunnar Kristjánsson

Ísak Þórir og Jarl

Kaupa Í körfu

Jarl og Ísak í Grundarfirði Það hefur gengið á ýmsu í lífi folaldsins Jarls frá Grundarfirði. Aflífa varð móður hans eftir fæðinguna og var Jarl þá tekinn inn í sumarbústað að Spjör í Eyrarsveit þar sem hann var hafður um nóttina þar sem svo kalt var í veðri. Ísak Þórir Ísólfsson hafði mikla samúð með Jarli og gerði sitt besta til að hugga hann. Nú hefur Jarl eignast nýja móður því að önnur hryssa hafði stuttu áður misst folald. Eftir að hafa látið folaldið sjúga fósturmóðurina á hálftímafresti í 19 tíma tók hún folaldinu sem sínu eigin og gengur síðan allt að óskum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar