KR - Tindastóll 102:92

KR - Tindastóll 102:92

Kaupa Í körfu

TVÆR þriggja stiga körfur frá Herberti Arnarsyni rétt fyrir leikslok þurfti til að kveikja neistann í KR-ingum þegar þeir fengu Tindastól í heimsókn í gærkvöld. Það dugði til að rífa liðið úr dvala og gestirnir frá Sauðárkróki, sem voru komnir í villuvandræði eftir harðan leik, áttu ekkert svar við því og urðu að sætta sig við 102:92 tap. Sigur KR, sem var sá sjöundi í röð, skilar liðinu í 2. sæti deildarinnar, næst á eftir Grindavík en Tindastóll missti af því að komast upp um tvö sæti sem kæmi sér vel í úrslitakeppninni. MYNDATEXTI: Darrell Flake úr KR var ekki á því að láta Óla Barðdal úr Tindastóli handsama knöttinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar