Melkorka Ýr

Melkorka Ýr

Kaupa Í körfu

ÁVALLT er gott að hafa í huga að klæða sig eftir veðri og gæta þess sérstaklega að börnunum verði ekki kalt. Það er líka mikilvægt að gleyma ekki að gefa fuglunum eitthvað í gogginn þegar þeir geta ekki aflað fæðis sjálfir. Tveggja ára prinsessa úr Breiðholtinu, Melkorka Ýr Gyðudóttir, fékk að fara í strætó í fyrsta sinn og kappklædd notaði hún tækifærið meðal annars til að gefa fuglunum á Reykjavíkurtjörn brauð. Það þótti henni skemmtilegt og lék við hvern sinn fingur en gæsirnar kunnu vel að meta gjafmildi hennar og gátu vart beðið eftir því að fá meira.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar