Dyraverðir á skólabekk

Kristján Kristjánsson

Dyraverðir á skólabekk

Kaupa Í körfu

Dyraverðir á veitingastöðum, alls um 30 manns, luku fimm kvölda námskeiði á Akureyri í vikunni en um er að ræða samstarfsverkefni Einingar-Iðju og lögreglunnar. Að sögn Þorsteins Péturssonar lögreglumanns var farið yfir lög og reglur, samskipti dyravarða og lögreglu, borgaralega handtöku, skoðun skilríkja, réttindi og skyldur, tryggingar í starfi, slysahjálp, brunavarnir, fræðslu um fíkniefni auk verklegra æfinga í handtöku. MYNDATEXTI: Jón Knutsen, varðstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar, heldur fyrirlestur um skyndihjálp á námskeiði dyravarða. Jón Knutsen varðstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar heldur fyrirlestur um skyndihjálp á námskeiði dyravarða á veitingastöðum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar