ÍR - Haukar 78:98

ÍR - Haukar 78:98

Kaupa Í körfu

HAUKAR halda sínu striki í baráttunni um fjórða sætið í deildinni og þar með heimaleikjaréttinum í úrslitakeppninni. Í gærkvöldi unnu Hafnfirðingar lið ÍR í Seljaskólanum með tuttugu stiga mun, 78:98, og eru tveimur stigum á undan Njarðvíkingum í fjórða sæti og tveimur stigum á eftir Keflvíkinum sem eru í þriðja sætinu. myndatexti: Ég á hann þennan! Sigurður Þorvaldsson, ÍR-ingur, og Davíð Ásgrímsson, Haukamaður, berjast um knöttinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar