Bjarni Guðjónsson og Margrét Grétarsdóttir

Guðrún Vala Elísdóttir

Bjarni Guðjónsson og Margrét Grétarsdóttir

Kaupa Í körfu

INGA Björk Bjarnadóttir veitti 50 þúsund krónum viðtöku að gjöf frá Rótarýfélagi Borgarness nýverið. Gjöfin er styrkur vegna kaupa á sérútbúnum hnakki. Inga Björk er 9 ára og hefur verið í hjólastól frá 4 ára aldri vegna vöðvasjúkdóms. Hún hefur mikið dálæti á hestum og þegar hún var yngri reiddi pabbi hennar hana fyrir framan sig. Eftir að hún stækkaði hefur það verið erfitt og gat hún þá lítið farið á hestbak. Nú hefur hún eignast hnakk sem nefnist "Seifur" og getur stundað hestamennsku með fjölskyldu sinni. Hnakkurinn er hannaður af Erlendi Sigurðssyni með því markmiði að gera fötluðum kleift að njóta þess að fara á hestbak án þess að annar einstaklingur þurfi að styðja við eða sitja fyrir aftan þann fatlaða. MYNDATEXTI:Foreldrar Ingu Bjarkar eru Bjarni Guðjónsson og Margrét Grétarsdóttir. (Inga Björk ásamt foreldrum sínum þeim Bjarna Guðjónssyni og Margréti Grétarsdóttur)

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar