Við Austurbæjarskóla

Sverrir Vilhelmsson

Við Austurbæjarskóla

Kaupa Í körfu

KRAKKARNIR í Austurbæjarskóla nutu veðurblíðunnar til hins ýtrasta í gær og brugðu á leik á skólalóðinni í frímínútunum. Þau dóu ekki ráðalaus, þótt þau hefðu ekki snjóþotu og gripu það sem hendi var næst og gott að renna sér á. Þessi unga stúlka hefur til að mynda fundið plastpoka, sem getur verið hinn fínasti sleði þegar ekkert annað býðst. Til að maður meiði sig ekki á botninum er þó mikilvægt að aðgæta að brekkan sé alveg rennislétt, eins og í þessu tilviki, því það getur verið hættulegt að lenda á grjóthnullungi á mikilli ferð. ENGINN MYNDATEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar