Snjókerling - Leikskólinn Flúðir

Kristján Kristjánsson

Snjókerling - Leikskólinn Flúðir

Kaupa Í körfu

TÖLUVERT snjóaði á Akureyri í fyrrinótt og í gærmorgun var víða þungfært fyrir minni bíla á götum bæjarins, enda snjórinn mjög blautur. Þótt einhverjir ökumenn hafi bölvað í hljóði og jafnvel upphátt yfir færðinni, var yngsta fólkið nokkuð ánægt með aðstæður, ekki síst þar sem blautur snjór er sérlega góður til að búa til snjókarla og -kerlingar. Það var mikið líf á lóð leikskólans Flúða upp úr hádeginu í gær. Börnin léku sér í snjónum og þessar ungu stúlkur voru að leggja lokahönd á myndarlega snjókerlingu, sem einhverjir aðrir höfðu byrjað á fyrr um daginn. EKKI ANNAR TEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar